Nordic pallaefni – Kaffi
8.990 kr.m² .
Sterkt og viðhaldsfrítt pallaefni – fullkomið fyrir íslenskar aðstæður
Viðarplast (WPC) er endingargott og umhverfisvænt efni sem hentar einstaklega vel í pallasmíði við íslenskar aðstæður. Það hefur sannað sig í notkun hér á landi og nýtur síaukinnar vinsælda sem valkostur í klæðningar fyrir palla og útisvæði.
Efnið er:
-
Viðhaldsfrítt – engin olíun, lökkun eða önnur umhirða
-
Slitsterkt – þolir íslenskt veðurfar, UV-geislun og mikla notkun
-
Auðvelt í meðhöndlun – einfalt að saga, skrúfa og festa
WPC er framleitt úr endurunnu plasti, viðartrefjum og viðarsalla. Þessi blanda PE, PVC og náttúrulegra viðarefna skapar efni sem líkir eftir útliti viðar en hefur mun lengri endingartíma og lægri viðhaldskostnað.
Umhverfisvænn valkostur: Með vali á WPC ertu að styðja við endurvinnslu og minnka sóun – efnið nýtir plast og viðarafganga sem annars færu til spillis.
Upplýsingar um vöru:
-
Verð er miðað við fermetra.
-
Hver fjöl er 14,8 cm á breidd og 290 cm á lengd.
-
Millistykki fylgja með öllum pöntunum.