UMHVERFISVÆNT PALLAEFNI

VIÐARPLAST ER FULLKOMIÐ FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR

Viðarplast (WPC) er efni sem er framleitt úr endurunnu plasti, trefjum og viðarsalla. Í grunninn er efnið blanda af PE, PVC og viðarsalla. Þetta efni er fullkomlega viðhaldsfrítt og endist mun betur en hefðbundið timbur. Efnið er umumhverfisvænt að því leyti að við erum að endurnýta plast og viðarafganga sem hefðu að öðru leyti farið til spillis. Ein helsta ástæðan fyrir vinsældum viðarplasts er lágur líftímakostnaður (LLC) samanborið við sólpalla, skjólveggi og önnur mannvirki sem byggð eru úr timbri og hafa mun hærri líftímakostnað.