Algengar spurningar
ALGENGAR SPURNINGAR
Viðarplast (WPC) er efni sem er framleitt úr endurunnu plasti, trefjum og viðarsalla. Í grunninn er efnið blanda af PE, PVC og viðarsalla. Þetta efni er fullkomlega viðhaldsfrítt og endist mun betur en hefðbundið timbur. Efnið er umumhverfisvænt að því leyti að við erum að endurnýta plast og viðarafganga sem hefðu að öðru leyti farið til spillis. Ein helsta ástæðan fyrir vinsældum viðarplasts er lágur líftímakostnaður (LLC) samanborið við sólpalla, skjólveggi og önnur mannvirki sem byggð eru úr timbri og hafa mun hærri líftímakostnað.
Nordic pallaefnið er frábært fyrir íslenskar aðstæður. Efnið er einstaklega sterkt og gefur íslensku veðurfari lítið eftir. Það heldur lögun lit mun lengur en sambærilegar vörur.
Efnið er með hrjúfu yfirborði til þess að auka grip. Í frosti getur það orðið sleipt eins og öll önnur efni sem héla eða klaki myndast á. Málað timbur er t.d. mun sleipara en Nordic pallaefnið.
Það er eins og með allt annað í lífinu að ef undirbuningurinn er góður þá tekur þetta enga stund. Með efninu fylgja allar festingar sem þarf.
Það er lítið mál að fá að skoða efnið okkar en við bjóðum þér einnig að fá sent heim til þín án endurgjalds sýnishorn af efninu okkar. Smelltu hér!
AFHENDING OG GREIÐSLUR
Við bjóðum upp á staðgreiðslu með millifærslu og bankakröfu. Þú getur einnig fengið að dreifa greiðslunum með samningi við Netgíró og Teya.
Afhending er oft eftir samkomulagi. Við afhendum efni sem er ekki sérpantað með stuttum fyrirvara. Hægt er að sækja efni til okkar eða fá sent hvert á land sem er með innlendum flutningsaðilum.
Ef efni er ósagað, óskaddað og í fullkomnu ástandi er hægt að skila því til okkar gegn endurgreiðslu. Best er að hafa samband við okkur á sala@fyrirgardinn.is fyrir vöruskil.
Já það er ekkert mál að sérpanta efni fyrir stærri verk. Hafðu samband með frekari upplýsingar um verkið þitt og við svörum um hæl.